Monday, December 31, 2012

Annáll 2012

Árið 2012 var okkur gott. Árið fór rólega af stað, með tilheyrandi morgunógleði sem virðist vera aðalfylgifiskur meðgöngu hér á bæ.
Í febrúar héldum við upp á 3 og 5 ára afmæli með pompi og prakt og svo fyllti húsbóndinn árin 32.
Í mars var flestum ljóst að fjölgun væri í vændum í sumarlok og í apríl fengum við að vita að lítið stelpuskott var á leiðinni.
Maí var bjartur og fagur og í júní fórum við til Akureyrar með Karenu og Markúsi, júlí fór í bústaðarstækkun og í ágúst biðum við eftir barni. Brynhildur Anna vildi velja sinn afmælisdag sjálf og fæddist á Landspítalanum 20. ágúst.
September fór í tiltekt og október í göngutúra, nóvember fór í River Cottage og desember var ljúfur.
Gleðilegt ár!

Brynhildur Anna borðar meira.

Í dag smakkaði Brynhildur Anna ofnbakaða sæta kartöflu og fékk vatn í stútkönnu. Seinni partinn fær hún rísgraut.

Jólaboð 2012

Við buðum foreldrum og einhleypum systkinum ;)
Við vorum 7+1 fullorðin og 2 börn
 Matseðill:
2,5 kg úrbeinað fyllt (camembert, trönuber og villisveppir)  hátíðarlæri úr Nóatúni
brúnaðar kartöflur
sveppasósa
hrásalat
gular baunir
heimalagað rauðkál.

Tvær litlar sneiðar í afgang.

Heppnaðist mjög vel.

Tuesday, December 25, 2012

Kringlukrakkar

Flottustu krakkarnir.
Posted by Picasa

Jólagjafir!

Gunnar Þór og Guðmundur Óli fengu: Buxur og skyrtu ásamt Spiderman kalli frá ömmu og afa í Hafnarfirði. Lego úr, leikhúsmiða (og Mary Poppins) og mynd eftir Eddu Heiðrúnu Bachman frá ömmu og afa í Lundi. Peysu og Playmokall frá Karen og Markúsi. Buxur, bol og Playmokall frá Lindu Björk. Playmobát og Playmobíl frá Baldri og Hjördísi. Lúffur og Matreiðslubók frá Ástu frænku. Spil frá Ástu og Óla. Stigasleði frá Langömmu Halldóru. Bækur frá Önnu og Gilsa.
Brynhildur Anna fékk: föt frá öllum nema Karen og Markúsi, þau gáfu henni tréeðlu til að draga.

Ýsa í ofni

Þessi réttur klikkar ekki.

Ýsa ca. 2 flök

Chili
Hvítlaukur
salt
pipar
Ljúflingur/öðlingur/einhver annar hvít/blámygluostur

Fiskurinn settur í álpappírsumslag, kryddaður og osturinn skorinn ofan á, inn í ofn á 180 gráður í ca. 20 mínútur (fer eftir þykkt fisksins).

Brynhildur Anna og pelinn

Brynhildur Anna fékk þrjá pela í dag, einn um 3, einn um 6 og einn kl. 11, brjóstið á milli. Spennandi að sjá hvaða áhrif það hefur á nætursvefninn. Hún var a.m.k. töluvert betri í skapinu í kvöld.

Saturday, December 22, 2012

Steiktur kjúklingur Kringlukommarnir

Besti kjúklingurinn:

1,5 kg. kjúklingalæri og leggir
 Perfect pinch kjúklingakrydd
Montreal Steak krydd
Paprikukrydd
Ólífuolía.

Olíu slett yfir kjúklinginn og kryddinu nuddað í bitana. Sett í ofn á 200 C í 30 mínútur, klikkar ekki.

Matur- jólin 2012

Matur:
Hamborgarhryggur frá Kjötkompaníinu, 2,6 kg (4 fullorðnir-2börn) Dugði vel, smá afgangur.
Kartöflur, brúnaðar
Heimagert rauðkál (tvær týpur úr tveimur hausum)
Sósa
Gular baunir
Hrásalat

Forréttur:
Humarsúpa fiskiprinsins 1 dós
300g skelflettur Humar
Rjómi
Koníak
krydd eftir smekk, chili, hvítlaukur.

Eftirréttur
Frómas, tvöföld uppskrift.
Del Monte 1 dós
Rjómi
Egg

Hvítöl 4*1,25 l
Appelsín 3*2 l

1300 g fylltir molar
600 g Nóa súkkulaði

Wednesday, December 12, 2012

Brynhildur Anna borðar!

Brynhildur Anna er byrjuð að borða, fyrsta fæðan var butternut squash, hún kunni vel að meta það og borðaði ca. teskeið.
Hún fær pela um kl. 18.

Monday, December 3, 2012

Gunnar Þór missir tönn

Að kvöldi 3. des missti Gunnar Þór fyrstu tönnina, vinstri framtönn í neðri góm.
Mikil gleði og hamingja, Gunnar hringdi í ömmur og afa, mjög spenntur!