Árið 2012 var okkur gott. Árið fór rólega af stað, með tilheyrandi morgunógleði sem virðist vera aðalfylgifiskur meðgöngu hér á bæ.
Í febrúar héldum við upp á 3 og 5 ára afmæli með pompi og prakt og svo fyllti húsbóndinn árin 32.
Í mars var flestum ljóst að fjölgun væri í vændum í sumarlok og í apríl fengum við að vita að lítið stelpuskott var á leiðinni.
Maí var bjartur og fagur og í júní fórum við til Akureyrar með Karenu og Markúsi, júlí fór í bústaðarstækkun og í ágúst biðum við eftir barni. Brynhildur Anna vildi velja sinn afmælisdag sjálf og fæddist á Landspítalanum 20. ágúst.
September fór í tiltekt og október í göngutúra, nóvember fór í River Cottage og desember var ljúfur.
Gleðilegt ár!
No comments:
Post a Comment