Gunnar Þór á leið heim af fótboltaæfingu: "Þegar ég byrja í skóla verð ég miklu minna úti að leika mér en í leikskólanum." Ég: "Nú, af hverju?" Gunnar Þór (óskýrt): "Nú það eru bara frímínútur, ég verð bara í þrjár mínútur úti í frímínúturm" Ég: "Af hverju verður þú bara í þrjár mínútur í frímínútum?" Gunnar: "Það er svo mikið að gera og ég verð að vera duglegur að læra að reikna og svona" Ég: "Uhm, ókei, en af hverju þrjár mínútur, af hverju ekki tvær eða fimm mínútur?"
Gunnar (hneikslaður): "Nú af því að þetta heitir þrí-mín-út-ur."
Friday, January 4, 2013
Vonbrigði dagsins.
Guðmundur Óli tilkynnti okkur glaður í bragði að hann ætlaði að eignast tíu börn þegar hann yrði stór. Við spurðum hann hvort hann væri búinn að finna sér konu til að eignast öll þessi börn með, hann sagði: "Nei, ég ætla að eignast þau með mér." Við sögðum að það væri ekki hægt, konur væru líffræðilega nauðsynlegar til að eignast börn. Viðbrögðin voru óborganleg, smám saman færðist skeifa yfir andlitið og tárin streymdu niður kinnarnar, við fengum hláturskast og þá barði litli maðurinn með báðum höndum í borði og öskraði á okkur: " Ekki hlæja, ekki hlæja" og við hlógum ennþá meira.
Hangikjöt með sætum kartöflum.
Það er hægt að borða hangikjöt án uppstúfs... við prófuðum í gærkvöldi að sleppa kartöflum og uppstúfnum og baka sætar kartöflur í staðinn. Það virkaði! Hver hefði trúað því?
Sætar kartöflur, bakaðar í ofni við 200 C í ca. klukkutíma, eru ótrúlega góðar, það kemur smá karamellukeimur af þeim og þær renna úr hýðinu. Smá smjörklípa, grænar baunir, heimalagað rauðkál og hangikjöt.
Sætar kartöflur, bakaðar í ofni við 200 C í ca. klukkutíma, eru ótrúlega góðar, það kemur smá karamellukeimur af þeim og þær renna úr hýðinu. Smá smjörklípa, grænar baunir, heimalagað rauðkál og hangikjöt.
Subscribe to:
Comments (Atom)