Friday, January 4, 2013

Vonbrigði dagsins.

Guðmundur Óli tilkynnti okkur glaður í bragði að hann ætlaði að eignast tíu börn þegar hann yrði stór. Við spurðum hann hvort hann væri búinn að finna sér konu til að eignast öll þessi börn með, hann sagði: "Nei, ég ætla að eignast þau með mér." Við sögðum að það væri ekki hægt, konur væru líffræðilega nauðsynlegar til að eignast börn. Viðbrögðin voru óborganleg, smám saman færðist skeifa yfir andlitið og tárin streymdu niður kinnarnar, við fengum hláturskast og þá barði litli maðurinn með báðum höndum í borði og öskraði á okkur: " Ekki hlæja, ekki hlæja" og við hlógum ennþá meira.

No comments:

Post a Comment